Finn fyrir nokkurri depurð 14. júní 2006 06:45 "
Ég finn fyrir nokkurri depurð í dag og það er í fyrsta sinn síðan úrslit kosninganna lágu fyrir," sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fráfarandi borgarstjóri, rétt áður en hún afhenti Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, nýjum borgarstjóra, lyklana að skrifstofu borgarstjóra í gær. "Ég sé vitaskuld eftir meirihlutanum og svo fannst mér sorglegt að sjá konur bera skarðan hlut frá borði í kjöri til nefnda og ráða," sagði Steinunn Valdís og gagnrýndi hvernig meirihlutinn hagaði vali sínu á fólki í nefndir. Steinunn Valdís segist hafa átt skemmtilegan og lærdómsríkan tíma í embætti borgarstjóra. Hann hafi þó líka verið erfiður. "En ég hef unnið hér með frábæru starfsfólki og kveð það með söknuði." Spurð hvernig henni litist á Vilhjálm Þ. í embætti borgarstjóra svaraði Steinunn Valdís því til að hann væri ágætur karl. "Ég hef þekkt hann lengi og hann hefur mikla reynslu og það hefur ekkert með hans persónu að gera að mér hugnast ekki hans pólitík eins og hún birtist okkur í nefndarkjörinu. Fólkið sem er með honum er mjög hægrisinnað í ýmsu sem lýtur að skóla-, velferðar- og jafnréttismálum og ég hef ástæðu til að óttast það."
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira