Þagði um félagana vegna ótta 14. júní 2006 06:00
Maður á þrítugsaldri, Mikael Már Pálsson, var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfelld fíkniefnabrot og fleiri afbrot. Hann reyndi að smygla inn rúmlega 3,7 kílóum af hreinu amfetamíni og átti aðild að tilraun til smygls á 423 grömmum af kókaíni. Mikael Már var stöðvaður í Leifsstöð við heimkomu frá Frakklandi í febrúar þegar fíkniefnahundur benti á hann. Í baki ferðatösku hans fundust flatar pakkningar, sem innihéldu rúm 3,7 kíló af amfetamíni. Efnið var greint og reyndist styrkleiki þess á bilinu 98-100 prósent, eða hreint amfetamín í duftformi. Mikael sagðist við yfirheyrslur hafa gert samning við mann á Íslandi um að hann flytti efnin til Íslands og þá myndu allar skuldir hans, spilaskuldir og fíkniefnaskuldir, verða greiddar upp. Hann vildi ekki segja hver væri eigandi efnanna vegna ótta um eigið líf. Hann játaði sök og sagðist jafnframt ekkert val hafa haft um hvort hann færi eða ekki. Þá var Mikael Má gefið að sök að hafa fengið tvo unga pilta til að flytja fíkniefni til Íslands frá Amsterdam í Hollandi og falið þeim að útvega einn mann til viðbótar til verksins. Til frádráttar fangelsisvistinni kemur gæsluvarðhald sem Mikael hefur sætt frá 4. febrúar. Hann er nú í geðlyfjameðferð.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Sjá meira