Innlent

Kaupmenn tala um kjötskort

Henný Hinz
Henný Hinz

Matvörukarfan verður stöðugt dýrari. Þetta kemur fram í verðbólgumælingu Hagstofunnar sem kynnt var í gær. Verðbólgan er nú átta prósent og er það fyrst og fremst vegna þess að viðhald á eigin húsnæði er dýrara og svo hefur verð á mat- og drykkjarvörum hækkað verulega.

Henny Hinz, verkefnisstjóri Verðlagseftirlits ASÍ, segir að verð á allri matvöru hafi hækkað. Grænmetið og ávextirnir hafa þó hækkað meira en aðrar vörur, eða um 11 prósent milli mánaða, en verð á þessum vörum sveiflast meira eftir árstíma en verð á öðrum vörum.

Miklar verðhækkanir hafa einnig verið á kjöti. Henný segir að kaupmenn tali mikið um kjötskort, ekki sé nóg af kjöti á markaðnum og það sé ein af skýringunum á hærra kjötverði. Nautakjöt, svínakjöt og lambakjöt hafi hækkað um 14-17 prósent síðustu tólf mánuði en fuglakjöt aðeins um þrjú prósent.

Verð á eigin húsnæði hækkaði um tæplega eitt prósent milli mánaða maí og júní, mest vegna hærra markaðsverðs og vaxtahækkana. Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,4 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×