Innlent

Veiðimenn hætt komnir

Vatnsmagn í Norðurá í Borgarfirði hefur sveiflast undanfarna daga og var yfirborðið á tímabili tveimur metrum hærra en þegar það var sem lægst í maí. Svo hörð var áin í fyrradag að hún hreif með sér bát með fjórum veiðimönnum niður foss, en betur fór en á horfðist og sluppu mennirnir ómeiddir.

Gunnar Jónsson veiðivörður segir vatnavexti sem þessa ekki óalgenga yfir sumarið og áhrif þeirra ekki mikil á veiðina. Um hádegisbil í gær var áin komin í samt lag aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×