Telur upptökin hjá samkeppnisaðila 14. júní 2006 07:00 Halldór Guðbjarnarson framkvæmdastjóri Visa Ísland Segist ekki vita hvaða röksemdir hafa legið til grundvallar húsleitarheimildinni. MYND/e.ól "
Mér fannst ég vera staddur í ríki sem hefði eitthvað annað réttarfar en við," sagði Halldór Guðbjarnarson, forstjóri Visa Ísland um húsleit sem Samkeppniseftirlitið gerði hjá fyrirtækinu í gærmorgun samkvæmt dómsúrskurði. Var fulltrúum eftirlitsins heimilt að taka öll gögn sem þeim þóknaðist og afrit af tölvugögnum að sögn Halldórs. "Við fáum ekkert að sjá hvað er lagt fram," sagði Halldór og bætti við að sá sem hefði lagt einhverjar upplýsingar fram hefði gert það undir nafnleynd. Halldór sagði Visa Ísland hafa verið í samkeppni á markaði fyrir kortafærslur frá kaupmönnum við danska fyrirtækið PBS seinustu þrjú árin. "Af því sem að lýtur að lýsingu dómarans þá er svo að sjá að þetta mál eigi einhver upptök úr þeirri átt. Við erum sakaðir um að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu okkar á þessum færsluhirðingarmarkaði. Hvernig, hef ég ekki hugmynd um." Halldór segir PBS hafa nokkrum sinnum sent kvartanir og kærur yfir Visa Ísland til Samkeppniseftirlitsins áður. Visa Ísland er ráðandi á þessum markaði með næstum 100 prósenta markaðshlutdeild að sögn Halldórs. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði tilefni húsleitarinnar vera rökstuddan grun um brot á samkeppnislögum og þá fyrst og fremst brot á ákvæðum banns við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Að sögn Páls taldi stofnunin óhjákvæmilegt að óska eftir húsleitarheimild til að upplýsa málið. Hann tjáði sig ekki nánar um tildrög.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ Sjá meira