Þrýst á endurkomu Tómasar 14. júní 2006 06:15 TÓMAS ZOËGA Í bréfi sem lögmaður Tómasar hefur sent Landspítalanum segir að hann muni krefjast miskabóta.
Lögmaður Tómasar Zoëga læknis hefur sent forstjóra Landspítalans erindi þar sem óskað er eftir því að haft verði samráð við lækningaforstjóra spítalans um það hvenær Tómas taki aftur við starfi yfirlæknis geðsviðs. Þá er áréttað að hann muni krefjast miskabóta vegna ólögmætisins. Þetta er gert í framhaldi af dómi Hæstaréttar, sem dæmdi að tilfærsla Tómasar úr starfi yfirlæknis í stöðu sérfræðilæknis hefði verið ólögmæt. Hæstiréttur staðfesti ekki dóm undirréttar sem ógilti þessa ákvörðun yfirstjórnar spítalans. "Ef lögmaður spítalans talaði í umboði yfirstjórnar spítalans fyrir helgina þá má búast við því að þeir tilkynni að þrátt fyrir ólögmæti ákvörðunarinnar ætli þeir að halda henni til streitu og þar með eru þeir að framkalla milljóna eða tugmilljóna króna skaðabótakröfu sem við hin eigum að borga," segir Karl Axelsson hrl., lögmaður Tómasar. Hann bætir við að Tómas fái miskabætur hvað sem öðru líði, því búið sé að gera ólögmæta hluti gagnvart honum. "En þær hækka ef á svo að neita að leiðrétta óréttlætið gagnvart honum núna." Ekki náðist í Magnús Pétursson forstjóra LSH sem staddur er erlendis.
Innlent Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“