Innlent

Íslendingar með lægstu fjárframlög Norðurlandanna

 

Íslendingar eru ekki einu sinni hálfdrættingar á við hinar Norðurlandaþjóðirnar þegar kemur að fjárframlögum til aðstoðar fórnarlömbum jarðskjálftans í Kasmír. Þegar aðrar þjóðir juku framlög sín í dag þótti ríkisstjórn Íslands hæfilegt að gera ekkert.

Norðurlandaþjóðirnar hafa lagt töluvert fé til hjálparstarfanna, þó að Ísland sé hálfgerð undantekning.

Danir hafa lagt til átta hundruð þrjátíu og eina milljón króna eða 153 krónur fyrir hver Dana. Svíar hafa lagt til rúmlega ellefu hundruð sjötíu og fjórar milljónir eða 130 krónur fyrir hvern Svía. Norðmenn er rausnarlegastir, með sextán hundruð sjötínu og átta miljóniir eða 364 krónur fyrir hvern Norðmann.

Íslendingar eru langlægstir, með átján milljónir króna eða sextíu og tvær milljónir króna. Hvernig stendur á þessu og hvers vegna var framlagið til fórnarlamba fellibylsins Katrínar í Bandaríkjunum, sem voru töluvert færri, þrjátíu og fimm milljónir? Utanríkisráðherra vildi ekki veita viðtal til að svara því í dag.

Reyndar hafa norrænir þingmenn á þingi Norðurlandaráðs gert fjárframlög Íslendinga að umtalsefni og gagnrýnt að íslensk stjórnvöld skuli ráðstafa miklu lægra hlutfalli af þjóðarframleiðslu til þróunarmála en nágrannalöndin. Carsten Hansen, þingmaður danska jafnaðarmannaflokksins, spurði Halldór Ásgrímsson að því hvort ekki væri tímabært að Íslendingar veittu jafnhátt hlutfall og hinarð Norðurlandaþjóðirnar. Halldór svaraði því til að framlagið hefði verið þrefaldað á undanförnum árum.

Samkvæmt upplýsingum úr Norrænu tölfræðihandbókinni 2005 vörðu Danir 0,84% af landframleiðslu sinni til þróunarmála. Í Noregi var hlutfallið 0,87%, í Svíþjóð 0,79% og í Finnlandi 0,35%. Á Íslandi er það 0,19%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×