Sport

Magnús á leið í Víking?

Magnús Gylfason verður að öllum líkindum næsti þjálfari Víkinga, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins og leysir Sigurð Jónsson af hólmi. Magnús var sem kunngt er leystur undan störfum hjá KR í sumar. Víkingar settu strax í samband við Magnús þegar samningar náðust ekki við Sigurð og er vilji beggja aðila að ganga til samninga."Magnús kemur alveg eins til greina og aðrir. Hann er í golfi á Spáni. Ég neita því ekki að við höfum rætt við Magnús og reyndar fleiri þjálfara. Það verður gengið frá þjálfaramálunum síðar í vikunni, hver sem það verður," sagði Ágúst Friðrik Hafberg, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, við Fréttablaðið. Ekki náðist í Magnús í gær. Sigurður, sem er í fríi í San Marino, sagði við Fréttablaðið að því miður hefði ekki náðst samkomulag við Víking um áframhaldandi samstarf. "Þetta er eins og hjónaband, stundum eru aðilar bara ekki sammala og þá gengur dæmið ekki upp. Annars er ég mjög sáttur við aðskilnað minn hjá Víkingi. Ég skilaði liðinu aftur upp í Landsbankadeildina."Sigurður sagðist vera með tvö tilboð í höndunum um þjálfun, annað þeirra er frá Svíþjóð sem aðstoðarþjálfari í góðu liði og hitt er hér heima. Sigurður vildi ekkert tjá sig frekar um það. Sigurður hefur aðstoðað Eyjólf Sverrisson hjá U-21 árs landsliði Íslands í sumar. Þrálátur orðrómur er á kreiki að Eyjólfur taki við íslenska A-landsliðinu í haust og Sigurður hefur verið orðaður sem næsti þjálfari U-21 árs landsliðsins."Ég neita því ekki að mér finnst það spennandi kostur. Það hentar mér vel að þjálfa efnilega knattspyrnumenn," sagði Sigurður sem ætlar að leggjast undir feld þegar hann kemur heim úr sumarfríi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×