Athuga ástæðu til rannsóknar 28. september 2005 00:01
Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins. Einstaklingarnir fimm eru Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Gerland Sullenberger, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson. Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, sagði í Íslandi í bítið í morgun að Morgunblaðið væri búið að fella grímuna og væri ekki sá hlutlausi fjölmiðill, sem það hefði þóst vera. Það hefði komið í ljós að blaðið væri áróðurstæki og hefði verið notað sem slíkt af ritstjóranum. Í blaðinu í gær hefði sést varnargagn í baráttu hans í þeirri stöðu sem hann væri kominn í eftir að uppljóstranir hefðu komið fram um leynifundi og samsæri sem Styrmir Gunnarsson hefði tekið þátt í og beindust gegn Baugi. Hreinn sagði að fyrst og fremst væri um að ræða einhvers konar áróðursbragð og verið væri að reyna að draga athyglina frá aðalatriðum málsins og beina henni að einhverjum atriðum sem skiptu ekki máli fyrir það sem fram hefði komið og þær vísbendingar sem nú væru uppi um það samráð sem hefði átt sér stað á ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins með þátttöku áhrifamikilla manna, þar á meða Kjartans Gunnarssonar. Þetta væri aðalatriðið í málinu og það þyrfti að skoða miklu betur en gert hefði verið.
Fréttir Innlent Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira