Sport

KR - Þróttur í úrslitum

Það verða KR og Þróttur sem leika til úrslita í deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu á fimmtudaginn. Þróttur sigraði ÍA 2-1 í framlengdum leik. Ólafur Tryggvason kom Þrótti yfir en Gunnlaugur Jónsson jafnaði metin fyrir Skagamenn. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Sævar Eyjólfsson skoraði sigurmarkið á lokamínútunni. KR sigraði Breiðablik 3-0 í hinni undanúrslitarimmunni. Sigurvin Ólafsson, Gunnar Kristjánsson og Arnljótur Davíðsson skoruðu mörk KR inga. Nú eru þrjár vikur þangað til Landsbankadeildin í knattspyrnu hefst. Í Olíssporti á Sýn kl. 22 í kvöld hefst kynningin á liðunum tíu í Landsbankadeildinni og þá verður fjallað um liðin sem spáð er falli, þ.e. 9. og 10. sæti. Fyrirliðar liðanna koma í heimsókn, rætt verður við nýliða, stuðningsmenn og sérfræðinga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×