Hundaheppni í Hólminum 20. mars 2005 00:01
Snæfell og Fjölnir áttust við í undanúrslitum Intersportdeildarinnar í körfuknattleik í Stykkishólmi í gærkvöldi. Fríður hópur fólks fylgdi liði sínu úr Grafarvogi til að fylgjast með fyrstu viðureign liðanna í seríunni en þrjá sigurleiki þarf til að komast í úrslitin. Þegar uppi var staðið höfðu heimamenn sigur, 103-101, eftir æspennandi framlengdan leik. Snæfellsliðið mætti mjög einbeitt til leiks og eftir aðeins tvær og hálfa mínútu var staðan orðin 12-2 heimamönnum í vil. Fjölnismenn tóku leikhlé en lítið breyttist eftir það. Snæfellsliðið lék sterka maður-á-mann vörn og hafði Hlynur Bæringsson sérstaklega góðar gætur á Nemanja Sovic. Snæfell, með þá Mike Ames og Calvin Clemmons í broddi fylkingar, hélt uppteknum hætti og valtaði yfir gestina. Ames skoraði 4 af 8 þriggja stiga körfum Snæfells í fjórðungnum og staðan var 41-20 eftir 10 mínútna leik. Fjölnir vaknaði eilítið til lífsins í öðrum fjórðungi og gerðu heimamenn grundvallarmistök, hættu að sækja og fóru frekar í að halda fengnum hlut. Fjölnir mætti leikmönnum Snæfells framar á vellinum og virtist sóknarleikur heimamanna riðlast við það. Góður endasprettur tryggði heimamönnum 16 stiga forystu í hálfleik, 58-42. Stuðningsmenn Snæfells hafa eflaust hugsað með sér að það væri formsatriði að ljúka leiknum en annað kom heldur betur á daginn. Fjölnir skoraði fjórar þriggja stiga körfur á upphafsmínútum síðari hálfleiks og skaut sig inn í leikinn að nýju. Snæfell datt í hnoðgírinn, þar sem menn kusu frekar að fara einn á einn en að láta liðsheildina ráða ríkjum og minnkaði Fjölnir forskotið í 72-70 undir lok fjórðungsins. Snæfell, sem skoraði 41 stig í fyrsta leikhluta, skoraði aðeins 15 stig á þessum kafla. Lokamínútur venjulegs leiktíma voru æsispennandi. Jeb Ivey jafnaði leikinn með þriggja stiga körfu, 93-93, þegar 23 sekúndur voru eftir af leiknum. Ivey braut á Mike Ames, fékk fimmtu villu sína, fjórar sekúndur eftir. Ames klikkaði úr báðum skotunum, Magnús Pálsson tók ævintýralegt skot og litlu munaði að Hjalti Vilhjálmsson næði að blaka boltanum ofan í. Því þurfti að grípa til framlengingar. Bæði Ivey og Nemanja Sovic voru utan vallar í framlengingunni en engu að síður hefði sigurinn getað lent Fjölnismegin. Pálmi Freyr Sigurgeirsson tryggði Snæfelli sigur með einu vítaskoti þegar fjórar sekúndur voru eftir. Hann misnotaði seinna skotið en Hlynur Bæringsson náði frákastinu og leiktíminn rann út. Lokatölur urðu 103-101. "Fyrri hálfleikurinn var eiginlega of hraður en í seinni hálfleik vorum við að taka mikið af þvinguðum skotum. Það eigum við alls ekki að þurfa enda með mjög góðar skyttur innan okkar raða. Við vorum ekki nógu skynsamir í seinni hálfleik. Við eigum að geta verið miklu betri í kollinum en þetta. Menn voru heldur ekki að taka skotin af nógu miklum krafti en sigurinn hafðist og það er fyrir öllu," sagði Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæfells. "Við vissum alltaf að við kæmumst inn í þetta. Svona skotsýning endist bara í smá tíma. Ég held að þeir séu að klikka úr einu skoti í fyrsta fjórðungi, voru þá með 8 þrista. Við höfðum alltaf trú á að við kæmum inn í þetta. Hefðu mínir lykilmenn fengið að vera inni á og spila körfubolta hefðum við tekið þetta. Engu að síður var þetta mjög vel dæmdur leikur," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari Fjölnis.
Körfubolti Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Fleiri fréttir Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi England - Króatía | Stórleikur í Texas Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur í Þorlákshöfn Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur Sjá meira