Sport

Pétur í sigurliði Hammarby

Pétur Hafliði Marteinsson lék allan leikinn með Hammarby í 3-1 sigri liðsins á Hacken í sænsku úvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Hjálmar Jónsson lék fyrri hálfleik með IFK Gautaborg þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Elfsborg. Hammarby og Gautaborg eru um miðja deild. Skagamaðurinn Stefán Þórðarson sá rautt þegar liðið hans, Norrköping, gerði 2-2 jafntefli gegn Ljungskile í fyrstu deildinni sænsku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×