Litblindir hlusta á litrófið 28. maí 2005 00:01
Litblindir geta hlustað á litrófið með hjálp tækis, sem gerir þeim kleift að greina í sundur mismunandi liti með hljóðmerkjum. Litblindur listmálari er sá fyrsti sem notar tækið og má ímynda sér að verkin fái aukna dýpt og verði aðgengilegri þeim sem skynja liti. Breski listamaðurinn Neil Harbisson fæddist litblindur en hefur tekið tækið, sem ber heitið Eyeborg, í sína þjónustu. Smámyndavél sendir upplýsingar í tækið en það notar hljóðbylgjur til að aðgreina litina. Hver litur fær sinn tón. Harbisson hefur eingöngu notað svartan lit í verk sín en nú verður breyting á. Hann segir að það skipti ekki öllu hvernig málverkið líti út heldur hvernig það hljómi. Það sé því eins og hans sé að semja tónverk með litum og þetta sé tónlist á striga. Adam Montandon, hönnuður tækisins, vinnur nú að annari útgáfu þess og smærri til að auðvelda litblindum lífið. Hann segir að þegar hann hafi smíðað tækið hafi honum ekki dottið í hug hvernig það gæti breytt lífi fólks. Hann hafi bara búist við að tækið yrði leikfang. Nú sé Harbisson með það allan sólarhringinn og það sé orðið hluti af persónuleika hans. Og það er ekki bara við listsköpun sem Eyeborg nýtist Harbisson. Hann segir að hann hafi ekki vitað að appelsínusafi væri appelsínusafi fyrr en hann hafi smakkað hann og ef hann hafi ætlað að hitta einhvern sem sagðist vera á bláum bíl hafi hann ekki getað þekkt bílinn. Þess má svo geta að Harbisson segir rauðan vera eftirlætis lit sinn og þá vegna þess víbrandi hljóðs sem hann gefur frá sér.
Erlent Fréttir Mest lesið Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Innlent „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Fleiri fréttir Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Sjá meira