Ástandið betra en ekki eðlilegt 28. maí 2005 00:01
Ástandið í Darfur hefur batnað en stjórnvöld á svæðinu þurfa að gera meira til að bæta aðstöðu þeirra hundruð þúsunda einstaklinga sem hafa flúið ofbeldi í héraðinu. Þetta sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, þegar hann kom í dagslanga heimsókn til Darfurhéraðs í Súdan í gær. Annan ræddi við Al-Haj Atalmannan Idris héraðsstjóra sem sagði honum hvernig reynt væri að bæta samskipti þjóðflokkanna sem byggja Darfur. Þannig væri leitast leiða við að gera svæðið friðvænlegra og líf íbúanna betra en áður. Annan tók undir með héraðsstjóranum að ástandið hefði batnað en sagði þörf á að gera meira svo ástandið gæti talist eðlilegt. "Við ræddum þörfina á að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma á friði í Darfur og tryggja að bændur geti snúið aftur til jarða sinna, gróðursett, ræktað og uppskorið. Annars horfum við fram á neyðaraðstoð sem á eftir að reyna mjög á getu alþjóðasamfélagsins til að bregðast við," sagði Annan að fundinum loknum. Síðasta fimmtudag var haldin ráðstefna í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, og var markmiðið hennar að safna fé til friðargæslu í héraðinu. Þrátt fyrir eindregin bænarorð Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu Þjóðanna, söfnuðust aðeins um 13 milljarðar íslenskra króna. Þar af komu 8,5 milljarðar frá Kanada. Samtök Afríkuríkja töldu að alls þyrftu að safnast tæpir 30 milljarðar, en samtökin sjá um friðargæsluna í héraðinu. Charles Snyder, fulltrúi Bandaríkjanna á ráðstefnunni, sagði að til að ljúka átökunum þyrfti Atlantshafsbandalagið að styðja við bakið á samtökunum. Hann taldi að þau hefðu í raun verið að leita eftir utanaðkomandi stuðningi. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sagðist bandalagið á fundinum tilbúið að veita alla þá aðstoð sem óskað væri eftir. "En Samtök afríkuríkja verða að halda um stýrið."
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira