Sport

FH með örugga forystu í bikar

FH hefur 23 stiga forystu eftir fyrri daginn í bikarkeppninni í frjálsum íþróttum. Þegar 19 greinar eru búnar hefur FH 100 stig en ÍR er í öðru sæti með 77 stig. Ungmennasamband Skagafjarðar og sameiginlegt lið Fjölnis og Ármanns er með 68 stig en Breiðablik er í fimmta sæti, stigi á eftir. Keppni hefst að nýju á Laugardalsvellinum klukkan 14. Tvö aldursflokkamet voru sett í gær. Ragnheiður Anna Þórsdóttir, FH, bætti þriggja áratuga gamalt met Guðrúnar Ingólfsdóttur í meyjaflokki í kúluvarpi um 8 sentímetra þegar hún kastaði 12,69 metra. Ragnheiður varð önnur í kúluvarpinu en Ásdís Hjálmsdóttir sigraði, kastaði 12,95 metra. Brynjar Gunnarsson, ÍR, bætti sveinametið í 400 metra grindahlaupi um rúma sekúndu, hljóp á 56,06 sekúndum. Brynjar varð annar í hlaupinu á eftir Birni Víkingssyni í FH sem hljóp á 55,31 sekúndu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×