Innlent

Skeljungur og Essó lækkuðu verð um helgina

MYND/Vísir
Olíufélögin Skeljungur og Essó lækkuðu bensínverð um helgina og er lítrinn á sjálfsafgreiðslustöðvum hjá báðum félögum kominn niður undir 109 krónur. Samkvæmt heimasíðu Olís í morgun hafði engin lækkun orðið þar. Verð á Díselolíu lækkaði líka hjá Skeljungi og Essó og er dísellítrinn heldur ódýrari en bensínlítrinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×