Sport

Seahawks láta Rice fara

Seattle Seahawks létu í dag eina mestu goðsögn NFL-fótboltans fara frá liðinu með því að slíta samningi sínum hlauparann Jerry Rice. Rice, sem er 42 ára, var fenginn til Seahawks frá Oakland Raiders á síðasta tímabili, en liðið telur sig ekki hafa not fyrir hann lengur. Rice tilkynnti fyrir skömmu að hann hyggðist leika áfram. Rice er sá leikmaður sem hefur gripið flestar sendingar (1,549), hlaupið flesta metra og skorað flest snertimörk í sögu NFL (207). Hann hefur að auki unnið Ofurskálaleikinn (Super Bowl ) í þrígang, í öll skipting með San Francisco 49ers.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×