Uppstokkun boðuð í Frakklandi 30. maí 2005 00:01
Jacques Chirac Frakklandsforseti sat í gær á rökstólum með ríkisstjórn sinni eftir að öruggur meirihluti franskra kjósenda hafnaði stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Var fastlega búist við því að forsætisráðherrann Jean-Pierre Raffarin yrði látinn víkja, en úrslit atkvæðagreiðslunnar voru ekki síst túlkaðar sem vantraustsyfirlýsing á ríkisstjórnina. Talsmenn Chiracs sögðu að hann myndi tilkynna um uppstokkun í stjórninni í dag og flytja sjónvarpsávarp til þjóðarinnar í kvöld. Að mati franskra fjölmiðla eru þau Dominique de Villepin, núverandi innanríkisráðherra, Michele Alliot-Marie, núverandi varnarmálaráðherra, eða Nicolas Sarcozy, hinn metnaðarfulli formaður stjórnarflokksins, líklegust til að verða falið að taka við af Raffarin. Leiðtogar annarra Evrópusambandsríkja meltu í gær þá staðreynd að hið metnaðarfulla stjórnarskrárígildi sambandsins hefði nú strandað á Frakklandi, aðaldriffjöður Evrópusamrunans í fimmtíu ár. Öll aðildarríkin 25 þurfa að fullgilda sáttmálann til að hann geti gengið í gildi. Og nú virðist stefna í að á morgun muni hollenskir kjósendur einnig hafna sáttmálanum. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum ætlaði yfir 60 prósent Hollendinga að segja "nei" í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Hollenski forsætisráðherrann Jan-Peter Balkenende skoraði á landa sína að láta afstöðu Frakka ekki hafa áhrif á sig. Jan Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemborgar sem nú gegnir formennskunni í ESB, hvatti til "tímabils íhugunar" í kjölfar úrslitanna í Frakklandi. Slíkt gæti reynst gagnlegt til að Írar, Danir, Pólverjar og fleiri þjóðir sem til stendur að gangi einnig til þjóðaratkvæðis um sáttmálann, geti gert það í friði. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði of snemmt að segja til um hvort hætt verði við að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um staðfestingu sáttmálans í Bretlandi, en hann hafði áður boðað að slík atkvæðagreiðsla yrði haldin á næsta ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira