Avion kaupir fjórar Boeing 777 29. desember 2005 21:15
Avion Group gekk í dag frá kaupum á fjórum Boeing 777 vélum fyrir röska sextíu milljarða króna. Félagið hefur þar með samið um kaup á átta slíkum vélum og fær þær afhentar á undan flestum öðrum. Vélarnar verða einkum notaðar í flug á milli Evrópu og Asíu. Þær geta flogið rúmlega níu þúsund kílómetra í einni lotu og bera eitt hundrað og fjögur tonn. Vélarnar sem Avion hefur fest kaup á verða einkum notaðar í flug á milli Evrópu og Asíu. Þó að nákvæmt kaupverð hafi ekki verið gefið upp er listaverð á fjórum slíkum vélum um einn milljarður dollara, eða rösklega sextíu milljarðar króna. Í september gerði Avion sambærilegan samning um kaup á fjórum vélum og kaupverð vélannna átta er því í kringum eitt hundrað og tuttugu milljarðar króna. Það ætti því kannski engan að undra að sölustjóri Boeing í Evrópu sé allt að því hissa á getu Avion Group. Eitt það merkilegasta við samningana er hve fljótt Avion gengu til verks og verður félagið því næst fyrst í heiminum til að fá 777 vél afhenta. Avion Group fær fyrstu vélina afhenta í febrúar 2009. Air France er eina flugfélagið sem fær 777 vél á undan Avion, eða í október 2008. Og stjórnarformaðurinn telur það skipta miklu máli að vera á undan straumnum.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira