Umhverfisráðherra staðfestir breytingar á svæðisskipulagi 29. desember 2005 15:32 MYND/GVA
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur staðfest breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015 sem samvinnunefnd miðhálendis samþykkti á fundi sínum þann 12. ágúst 2005. Breytingarnar varða m.a. jarðvarmavirkjun við Hágöngur og lagningu háspennulínu frá þeirri virkjun og breytingu skálasvæðis við Kerlingarfjöll í hálendismiðstöð vegna ferðaþjónustu. Umhverfisráðherra hefur hins vegar synjað staðfestingu á þeim hluta svæðisskipulagstillögunnar sem lýtur að Norðlingaölduveitu. Ákvörðun umhverfisráðherra er í samræmi við tillögu Skipulagsstofnunar frá 25. október 2005. Fram kemur í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu að þar sem annmarkar voru á meðferð svæðisskipulagstillögunnar h afi ráðherra ekki lagaheimild til þess að staðfesta hana með þeim hætti sem samvinnunefnd miðhálendis samþykkti. Í rökstuðningi fyrir niðurstöðu umhverfisráðherra kemur fram að hin formlega málsmeðferð samvinnunefndar miðhálendisins um breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015 fyrir svæðið sunnan Hofsjökuls sé ekki í samræmi við skipulags- og byggingarlög. Sá annmarki var á afgreiðslu nefndarinnar að hún breytti auglýstri tilögu sinni í grundvallaratriðum án þess að auglýsa hana að nýju áður en hún var tekin til efnisafgreiðslu . Ákvæði laga um raforkuver skylda ekki samvinnunefnd miðhálendis til þess að taka Norðlingaölduveitu upp í svæðisskipulag miðhálendis samkvæmt úrskurði setts umhverfisráðherra frá 30. janúar 2003. Ákvæðið takmarkar þó þá raunhæfu valkosti sem nefndin hefur þegar landnýting er ákveðin fyrir svæðið sunnan Hofsjökuls vegna veitunnar. Ákvörðun ráðherra felur því í sér að skipulagi þess svæðis á miðhálendinu sem lýtur að Norðlingaölduveitu hefur ekki verið breytt og gildir því áfram það skipulag sem gilt hefur á því svæði. Það skipulag gerir ekki kleift að ráðast í framkvæmd Norðlingaölduveitu í samræmi við úrskurð setts umhverfisráðherra frá 30. janúar 2003 og er því framhald þess máls í höndum samvinnunefndar miðhálendis.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira