Kettirnir fá glaðning á jólunum í Kattholti 27. desember 2005 16:14
Hátt í 100 kettir eru nú í óskilum í Kattholti. Augljóst er að þeir sakna eigenda sinna enda magir hverjir búnir að vera fjarri heimilum sínum svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir. Þeir voru ánægðir með athyglina þegar fréttamann bar að garði í Kattholti. Það væsir ekki um kettina í Kattholti sem eru í dyggri umsjá Sigríðar Heiðberg forstöðukonu Kattholts. Þrátt fyrir það vildu kettirnir þó líklega flestir vilja vera hjá eigendum sínum um jólin líkt og endranær. Nú eru um 100 kettir í óskilum í Kattholti ásamt 40 köttum sem dvelja tímabundið á kattahótelinu. Sigríður segir að þó nokkuð margir kettir hafi komið í Kattholt nú rétt fyrir jólin. Hún segir kettina fá glaðning á jólunum en starfsfólk Kattholts gefi þeim rækjur og soðna ýsu í tilefni hátíðanna. Þrír hvítir kettlingar dveljast nú í Kattholti ásamt móður sinni en þeir fæddust í Kattholti. Móðir þeirra hefur fengið annað heimili og mun hún flytja norður í land þegar kettlingarnir eru orðnir nógu gamlir til að flytja til nýrra eigenda, það er að segja ef einhver vill taka þá að sér. Hugsuðurinn er einn þeirra katta sem fannst á vergangi og komið var með í Kattholt. Hann þykir sérlega blíður og góður köttur. Hugsuðurinn er sérstakur fyrir margar sakir. Hann er fatlaður en engu að síður duglegur að bjarga sér og lætur fötlun sína ekki aftra sér og er enginn eftirbátur hinna kattanna. Það er þó gott til þess að vita að það er ekki öllum sama um þessa ólánsketti sem hafa villst að heiman eða verið skildir eftir í ruslagámum. Einhver kattavinur var svo góðhjartaður að senda jólakort með 40.000 krónum nú fyrir jólin og vill Sigríður koma á framfæri sérlegu þakklæti til þessa einstaklings sem það gerði.
Fréttir Innlent Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira