Hyggst halda áfram í hungurverkfalli uns kjör öryrkja verða bætt 22. desember 2005 20:48
Öryrkinn Sonja Haralds hefur ekki neytt matar í 28 daga og hyggst halda hungurverkfallinu áfram uns kjör öryrkja verða bætt eða hún sjálf deyr. Hún hefur gengið þannig frá málum að ef ástand hennar verður lífshættulegt má ekki gera tilraunir til að lífga hana við. Aðstoðarlandlæknir segir fólk ráða lífi sínu og ekki sé hægt að þvinga það til að þiggja læknismeðferð. Í dag er dagur númer 28 í hungurverkfalli hinnar 68 ára gömlu Sonju Harlds. Sonja, sem er öryrki vegna geðsjúkdóms, segir þolinmæði sína gagnvart því að kjör öryrkja eins og hennar verði bætt á þrotum. Sjálf kveðst hún ekki lifa á bótum sínum og því er krafa hennar skýr. Hún vill að kjör öryrkja verði bætt og þeim tryggðar 150 þúsund króna lágmarksbætur. Sonja hefur búið svo um hnútana að verði ástand hennar þannig að hún geti ekki sjálf ákveðið hvort reyna eigi að bjarga lífi hennar þá verði það ekki gert. Læknar frá heilsugæslunni í Fossvogi heimsóttu svo Sonju í gær. Sonja segir að ekkert hafi komið úr fundi hennar og læknanna. Hún segist sofa illa en læknarnir vildu ekki gefa henni svefnlyf. Sonja segir að læknarnir hafi ekki skoðað sig eða athugað heilsu hennar. Sonja hefur búið á Íslandi í 45 ár en er fædd í Þýskalandi. Það var Íslenski hesturinn sem dró hana hingað unga að árum. Það er mörg ár síðan Sonja sat síðast hest. Hún sýnir okkur myndir af sex útlendum börnum. Börnunum hennar. En Sonja hefur varið rúmum fimm þúsund krónum í hverjum mánuði frá árinu 1978 í ABC hjálparstarf. Börn í fjórum löndum í þremur heimsálfum hafa þannig notið gæsku Sonju og fyrir vikið getað stundað nám og fengið læknisaðstoð. Aðstoð sem hún hefur nú alfarið hafnað. Landlæknisembættinu barst mál Sonju fyrir skemmstu. Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir segir slík mál eðlilega sjaldgæf hér á landi. Matthías segir að það verði að virðasjálfsákvörðunarrétt fólks ef það er í góðu jarðsambandiog er fullfært um að stjórna gerðum sínum. Í lögum um réttindi sjúklinga segir að fólk hafi rétt til þess að hafna meðferð og það eigi við um tilfelli Sonju. Matthías segir að ef hið opinbera eigi að grípa inn í þá þurfi ættingjar að óska sviptingar sjálfræðis. Það mun þó ekki verða gert í tilfelli Sonju. Skilaboð hennar til valdhafa á Íslandi eru enn skýr. Sonjasegir að stjórnvöld verði aðtaka sig til í andlitinu. Þaðsékominn tími til þess.
Fréttir Innlent Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira