Nýtt útboðsferli í Héðinsfjarðargöng 15. desember 2005 20:15
Nýtt útboðsferli Héðinsfjarðarganga er hafið og óskuðu sex verktakasamstæður eftir því að fá að bjóða í verkið, þeirra á meðal kínverskt járnbrautafyrirtæki. Stefnt er að því að borun ganganna hefjist næsta sumar. Héðinsfjarðargöngin hafa þann megintilgang að tengja Siglufjörð við Eyjafjarðarsvæðið. Það verður gert með tvennum göngum, annarsvegar 6,9 kílómetra löngum milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar og síðan 3,7 kílómetra löngum milli Héðinsfjarðar og Siglufjarðar. Verkið var fyrst boðið út fyrir tæpum tveimur árum en ríkisstjórnin frestaði þá framkvæmdum, aðeins einum mánuði eftir að tilboð voru opnuð, og bar við þensluástandi. Sú frestun hefur síðan leitt til málaferla sem enn sér ekki fyrir endann á milli Vegagerðarinnar og lægstbjóðanda, Íslenskra aðalverktaka og sænsks verktaka. Þrátt fyrir málaferlin eru Íslenskir aðalverktakar í hópi þeirra sex verktakasamstæða sem óskuðu þátttöku í nýja útboðinu, en forvalsfrestur rann út í fyrradag, að þessu sinni í samstarfi með svissneskum verktaka, Marti. Aðrir sem gáfu sig fram voru Metrostav í Tékklandi í samstarfi við Háfell, Ístak og Phil & Sön í Danmörku, Arnarfell, Leonard Nilsen og Héraðsverk og loks kínverski verktakinn China Railways Shisiju Group. Vegagerðin leggur nú mat á fjárhagsstöðu, reynslu og tækjakost þessara aðila áður en hún ákveður hverjir fái að senda inn tilboð, en þau verða opnuð um miðjan marsmánuð. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist síðan um mitt næsta sumar en göngin eiga að vera tilboðin fyrir árslok 2009, eftir fjögur ár.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira