Ummæli iðnaðarráðherra útúrsnúningar 15. desember 2005 19:00 MYND/Valgarður
Orkufyrirtæki hafa fengið loforð fyrir nýtingarleyfi samhliða rannsóknarleyfi vegna jarðhita. Iðnaðarráðherra segir hins vegar að slíkum leyfum sé ekki úthlutað ef nota eigi orkuna til raforkuframleiðslu. Þingmenn Samfylkingarinnar í iðnaðarnefnd segja þetta útúrsnúninga. Ekki sé hægt að skilja á milli raforkuframleiðslu og annarrar nýtingar. Ljóst sé að ef búið sé að úthluta auðlindum á þennan hátt verði þeim ekki úthlutað aftur. Samkvæmt fimmtu grein í lögum um nýtingu jarðrænna auðlinda frá 1998 getur ráðherra gefið vilyrði um nýtingarleyfi vegna jarðhita ef viðkomandi hefur fengið rannsóknarleyfi. Eldri lögin eiga aðeins við um jarðhita en tilgangur lagafrumvarpsins sem var lagt fram núna fyrir jólin var að breyta lögunum á þann veg að þau tækju einnig til vatnsorku og vatnsaflsvirkjana. Eins og komið hefur fram hefur ráðherra tekið til baka ummæli sín um að samkvæmt frumvarpinu fái þeir sem hafi rannsóknarleyfi vegna vatnsorku, forgang að nýtingarleyfi í tvö ár. Í gær sagði hún ennfremur að forgangur að slíku eyfi væri einungis til staðar varðandi jarðhitann, ef ekki ætti að nota hann til raforkuframleiðslu. Þetta segja nefndarmenn Samfylkingar í Iðnaðarnefnd að séu útúrsnúningar. Orkufyrirtækjum hafi verið lofað nýtingarleyfi jafnhliða rannsóknarleyfi, samkvæmt gömlu lögunum. Þetta hafi verið staðfest í Iðnaðarráðuneytinu í dag. Ekkert komi í veg fyrir að slík leyfi verði í framtíðinni nýtt til raforkuframleiðslu jafnhliða annarri orkuvinnslu. Þegar orkufyrirtækin hafi á annað borð fengið auðlindirnar í sínar hendur, sé ekki hægt að úthluta þeim aftur.
Fréttir Innlent Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Sjá meira