Kaupandi 100 milljóna húseignar hyggst rífa og byggja nýtt hús á lóðinni 15. desember 2005 19:12
Kaupandi stórs einbýlishúss á Seltjarnarnesi áformar að rífa húsið og byggja nýtt á lóðinni í staðinn. Samkvæmt heimildum NFS greiddi hann um hundrað milljónir króna fyrir húsið. Húsið var auglýst til sölu fyrir þremur vikum, en að sögn seljandans seldist það fáeinum dögum síðar. Húsið er tæpir 330 fermetrar, auk rúmlega 40 fermetra tvöfalds bílskúrs og 20 fermetra upphitaðrar útigeymslu. Það er um 30 ára gamalt og stendur á sjávarlóð. Börkur Thoroddsen tannlæknir seljandi hússins segist bundinn trúnaði við umboðsmann kaupandans um hver kaupandinn sé sem og um verð hússins. Kaupsamningi vegna sölunnar hefur ekki verið þinglýst samkvæmt uppýsingum frá sýslumanni.Börkur segist hafa upplýsingar um að til standi að rífa húsið og byggja nýtt hús á lóðinni. Börkur Thoroddsen segir sig og konu sína hafa hannað húsið á sínum tíma ásamt arkitekti og búið í því frá byggingu. Hann segist ekki hafa vitað af því þegar húsið var selt að áform væru uppi um að rífa það. Börkur segir húsið í góðu ástandi, það þurfi að lagfæra steypu og mála, en samkvæmt áliti sem hann hafi fengið frá sérfræðingi fyrir ári, megi ætla að þær framkvæmdir kosti á bilinu 3-4 milljónir króna. Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að um hundrað milljónir króna hefðu verið greiddar fyrir húsið. NFS hefur heimildir fyrir því að kaupandinn sé Jón Halldórsson hæstaréttlögmaður, en hann sagði í samtali við fréttastofuna að nafn hans væri ekki á kaupsamningnum, en neitaði að upplýsa á nafni hvers húsið væri. Aðspurður um hvers vegna stæði til að rífa húsið sagði hann að ekki væri víst að ákvörðun um það lægi fyrir. Nágranni Sæbrautar 13 sagðist í samtali við fréttastofuna hafa heyrt af þessum áformum og lýsti hryggð yfir þeim.
Fréttir Innlent Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Erlent Fleiri fréttir Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Sjá meira