Fulltrúi íhaldsins að mati oddvita Samfylkingarinnar 6. nóvember 2005 19:48
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er fulltrúi gamla íhaldsins sem borgarbúar kusu burt fyrir áratug og úrslitin úr prófkjöri Sjálfstæðismanna horfa aftur til fortíðar að mati oddvita Samfylkingarinnar í borginni, Stefáns Jóns Hafsteins. Vilhjálmur kallar þetta vonskukast yfir glæsilegum árangri Sjálfstæðismanna. Þegar upp var staðið var munurinn á þeim Vilhjálmi og Gísla Marteini talsvert meiri en skoðanakannir undanfarið höfðu bent til. Vilhjálmur segir að hann hafi alltaf trúað því að hann myndi sigra í prófkjöri sjálfstæðismanna en það væri gott hversu öruggur sigurinn væri. hann sagðist vera þakklátur sínum stuðningsmönnum. Þeir Vilhjálmur og Gísli Marteinn háðu harða kosningabaráttu. Gísli fékk sinn skerf af gagnrýni og Vilhjálmi var af mótherjum stillt upp sem manni fortíðar. Vilhjálmur sagðist ekki vera gramur eða sár eftir kosningabaráttuna en hún hefði farið vel fram og verið drengileg. Þrátt fyrir að slagnum um leiðtogasætið sé lokið þá situr Vilhjálmur enn undir sömu gagnrýni um að tilheyra fortíðinni. Stefán Jón Hafstein óskaði Vilhjálmi i til hamingu en úrslitin en sagði að þau myndu færa 14 ára forystukreppu í borgarstjórn aftur á byrjunarreit en Vilhjálmur væri fulltrúi gamla íhaldsins sem borgarbúar kusu burt árið 1994 og vildu ekki sjá í borgarstjórn árið 2006. Stefán Jón telur niðurstöðuna gefa kjósendum R-listans góða ástæðu til að koma heim aftur til Samfylkingarinnar og segir að fjölmargir kjósendur í prófkjöri Sjálfstæðismanna hljóti nú að íhuga annan kost en borgarstjóraefnið Vilhjálm. Þ. Vilhjálmsson. Stefán Jón segir að staðan hefði verið önnur ef Gísli Marteinn hefði farið með sigur úr bítum því hann væri nýr maður á nýjum tímum. Gísli hefði hins vegar ekki haft neina möguleika á að vinna kosninguna en bæði Vilhjálmur og Gísli væru lakir kostir fyrir kjósendur í prófkjörinu. Vilhjálmur segir ummæli Stefáns Jóns ekki vera annað en vonskukast yfir glæsilegum árangri sjálfstæðismanna í prófkjörskosningunni. Stefán Jón stefnir á að verða borgarstjóraefni frjálslyndra jafnaðarmanna og félagshyggjufólks og telur sig jafnframt hafa mikla skírskotun inn í raðir frjálslyndra sjálfstæðismanna líka. Óttast enga forystukreppu hjá Samfylkingarmönnum og virðist ekki kannast við að slík kreppa hafi kreppt að vinstri vængnum í borginni.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Sjá meira