Innlent

Vilhjálmur sigurstranglegur



 

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur unnið sigur yfir Gísla Marteini Baldurssyni í baráttunni um fyrsta sætið á lista Sjálfstæðimanna í Reykjavík, samkvæmt fyrstu tölum. 

Þegar talin höfðu verið 596 atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík var röðin eftirfarandi:

1. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson með 353 atkvæði í 1. sæti.

2. Hanna Birna Kristjánsdóttir með 346 atkvæði í 1.-2. sæti.

3. Gísli Marteinn Baldursson með 300 atkvæði í 1.-3. sæti.

4. Kjartan Magnússon með 338 atkvæði í 1.-4. sæti.

5. Júlíus Vífill Ingvarsson með 297 atkvæði í 1.-5. sæti.

6. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir með 342 atkvæði í 1.-6. sæti.

7. Jórunn Frímannsdóttir með 337 atkvæði 1.-7. sæti.

8. Sif Sigfúsdóttir með 255 atkvæði í 1.-8. sæti.

9. Bolli Thoroddsen með 264 atkvæði í 1.-9. sæti.

10. Marta Guðjónsdóttir með 237 atkvæði í 1.-9. sæti.

11. Ragnar Sær Ragnarsson með 205 atkvæði í 1.-9. sæti.

12. Kristján Guðmundsson með 193 atkvæði í 1.-9. sæti.

13. Björn Gíslason með 188 atkvæði í 1.-9. sæti.

14. Jóhann Páll Símonarson með 116 atkvæði í 1.-9. sæti.

15. Loftur Már Sigurðsson með 105 atkvæði í 1.-9. sæti.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagðist vera ánægður og þakklátur fyrir stuðninginn í prófkjörinu og þakkaði stuðningsmönnum sínum fyrir stuðninginn. Hann sagði prófkjörið eitt það stærsta frá upphafi og gleðilegt væri að fimm karlar og fimm konur í 10 efstu sætunum. Vilhjálmur sagði fyrstu tölur vera sterkar vísbendingar um úrslitin en þau myndu liggja fyrir að lokum.

Gísli Marteinn Baldursson sagðist ekki vera búinn að gefa upp alla von en hann sagði það ánægjulegt hversu vel framboðið og prófkjörskosningin hefðu farið fram. Hann sagði þátttöku í prófkjörinu góða. Mikil endurnýjun væri í flokknum en það væri að finna fullt af góðu fólki með nýjar hugmyndir. Gísli sagði að hann réðist ekki á garðinn þar sem hann væri lægstur með því að bjóða sig á móti Vilhjálmi en hann vildi breytingar fyrir borgina og að fólki hefði var um hver myndi leiða listann í borgarstjórnarkosningum í vor.

 

 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×