Brunavörnum verulega ábótavant 4. nóvember 2005 15:51 MYND/Vísir
Engar úrbætur hafa verið gerðar á brunavörnum í húsnæðinu að Lágmúla 6-8, þrátt fyrir ítrekaðar kröfur þar um af hálfu eldvarnareftirlitsins. Eigandi fasteignarinnar er nú beittur dagsektum. Brunavarnir í byggingunni, þar sem Bræðurnir Ormsson og Frjálsi fjárfestingabankinn eru meðal annars til húsa, hafa verið í ólestri í töluverðan tíma. Skráður eigandi fasteignarinnar er Fasteignafélagið Hlíð ehf. Að sögn Bjarna Kjartanssonar, framkvæmdastjóra forvarnadeildar slökkviliðsins, skoðaði Eldvarnareftirlitið bygginguna í maí síðastliðnum og kom þá í ljós að fjölmargt vantar upp á til að brunavarnir séu eins og vera ber. Til að mynda er ekkert sjálfvirkt eldvarnarkerfi í húsinu og flóttaleiðir eru ekki nægilega greiðar. Eldvarnareftirlitið sendi Hlíð bréf í byrjun júní þar sem þess var krafist að gerð væri bragarbót á en engin viðbrögð fengust við þeim kröfum. Í september var svo send ítrekun, en án árangurs. Þá sendi eldvarnareftirlitið bréf til borgarráðs þar sem óskað var eftir að dagsektum yrði beitt gegn Hlíð og var það samþykkt þann 21. október síðastliðinn. Hver sekt er upp á 19 þúsund krónur. Að sögn framkvæmdastjóra forvarnardeildar slökkviliðsins er ekki krafist dagsekta vegna skorts á brunavörnum þegar aðeins er hætta á tjóni á eignum, heldur einungis þegar öryggi fólks er ógnað. Ekki hefur tekist að hafa uppi á forsvarsmönnum Hlíðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira