Meðalhiti á Íslandi mun hækka 31. október 2005 19:31
Hækkun meðalhita á Íslandi um tvær til þrjár gráður á næstu hundrað árum mun einkum koma fram í fækkun kuldakasta að vetri fremur en hærri sumarhita. Samkvæmt nýjum tölvuútreikningum mun hlýna meira inn til landsins en út við ströndina. Þá mun úrkoma aukast. Fátt gleður Íslendinga meira en vísindakenningar um að það muni hlýna á landinu. En Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur, segir að hlýna muni um tvær til þrjár gráður á næstu hundrað árunum. Haraldur og nemendur hans í veðurfræði við Háskóla Íslands hafa í samvinnu við norska veðurfræðinga rýnt í útreikninga um hlýnun á svæðinu milli Grænlands og Skandinavíu og reynt jafnvel að meta breytingar í einstökum landshlutum á Íslandi. Haraldur segir að ýmislegt bendi til að hlýna muni meira að vetrarlagi en sumarlagi. Þessi hlýnun muni koma einna skýrast fram í færri kuldaköstum á veturnar og á vorin. Hlýnunin komi síður fram í sumarhitanum. Þá eru vísbendingar um að hlýna muni meira inn til landsins en út við sjóinn. Haraldur segir afar óljóst hvort sólskinsdögum muni fjölga eða hvort vinur breytist. Þeir sem hafa hag af mikilli úrkomu gætu hins vegar glaðst. Haraldur segir margt benda til að meiri úrkoma verði ekki síst til fjalla en á láglendi verði minni aukning í úrkomu. Vísindamennirnir telja sig sjá breytingu á úrkomu eftir landshlutum. Vetrarúrkoma mun aukast á á norðausturlandi og haust rigningar aukast á suðvesturlandi. Líklegt má telja að ásýnd landsins muni breytast. Haraldur segir að miðað við þessar spár þá fari sumarhitinn á Hveravöllum upp í það sem hann er á láglendi núna og menn geti því rétt ímyndað sér hvað muni breytast. Haraldur segir þau vísindi sem notuð eru til þess að spá nokkuð traust.
Fréttir Innlent Mest lesið Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Erlent Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetingar Erlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Fleiri fréttir Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Sjá meira