Verðbólga talin vera ofmetin 28. október 2005 19:32
Húsnæði er ofmetið í verðbólguútreikningum, samkvæmt niðurstöðu nýrrar rannsóknar í hagfræði. Verðbólga væri ríflega hálfu prósentustigi lægri, 4% í stað 4,6%, ef miðað yrði við nýja tegund húsnæðisvísitölu. Fasteignamat ríkisns reiknar út vísitölu íbúðaverðs, en eigið íbúðarhúsnæði vegur tólf og hálft prósent í vísitölu neysluverðs sem verðbólgan er miðuð við. Hins vegar þarf að taka gæði húsnæðis með í reikningin, segir Ásdís Kristjánsdóttir hagfræðingur í nýrri mastersritgerð. Hún segir að vísitala fasteignaverðs, samkvæmt Fasteignamati ríkisins, taki einungis tillit til stærðar og tegund fasteignar. Ásdís hefur þróað vísi tölu fasteigna sem hún segir vera gæðaleiðrétt vísitala og taka tillit til fleiri gæðaþátta við mat á fasteign. Vísitala hennar taki mið af aldri fasteigna, staðsetningar og hvort henni fylgi til að mynda, bílskúr, bílageymsla eða bílaskýli. Með þessarri vísitiölu er hægt að sýna frá á hvernig verð sömu fasteignar hefur þróast yfir ákveðið tímabil þar sem búið sé að leiðrétta gæðaþætti fasteignar. Frá því í mars og fram í júní á þessu ári var verð á eignum í fjölbýli ofmetið um þriðjung úr prósenti en um 2,12% ef sérbýli er skoðað. Ásdís skoðaði þróun vísitölu fasteignaverðs frá árinu 2000 til 2005 en þar kemur fram að vísitala fasteignaverð, samkvæmt ítreikningum Fasteignamats ríkisins, er vanmetin frá byrjun árs 2000 til 2003. Þessir útreikningar snúast svo við frá byrjun árs 2003 til byrjun árs 2005 en þá var vísitalan ofmetin. Ásdís segir að á fjögurra mánaða tímabili hafi komið fram töluverð breyting sérstakleg á mismun varðandi sérbýlishúsnæði. Verðbólga hér er nú um 4,6% samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni, en hún má ekki fara yfir 4% samkvæmt verðbólguviðmiði Seðlabankans. Sé hins vegar miðað við útreikninga Ásdísar, hefur verðbólga hér verið ofmetin um rúmlega hálft prósent síðustu mánuði og misseri -sem þýðir að verðbólgumarkmiðið gæti haldið - og því ekki sama þörf á frekari vaxtahækkunum Seðlabankans.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Sjá meira