Innlent

Kynntu sín sjónarmið

Albert Jónsson, sendiherra, sagði í samtali við fréttastofuna að það væri rangt að hann hefði stormað út af fundi vegnar varnarsamstarfsins. Nefndarmenn hefðu rætt saman og kynnt sjónarmið sín. Í ljós hafi komið að málið væri ekki komið á stig efnislegra samningaviðræðna. Því hafi ekki farið fram eiginlegir samningafundir, en viðræður hafi engu að síður átt sér stað. Íslenskir embættismenn með Albert Jónsson, sendiherra í utanríkisráðuneytinu, í broddi fylkingar fóru til Washington eftir helgi og hófu í gær fundi með bandarískum kollegum. Ekki voru miklar væntingar fyrir fundinn og viðmælendur fréttastofunnar áttu fyrirfram ekki von á því að mikið þokaðist í samkomulagsátt, en deilt hefur verið um skiptingu kostnaðar. Opinberlega segja talsmenn bandarískra stjórnvalda að viðræðurnar hafi ekki farið fram með þeim hætti sem gert hafi verið ráð fyrir. Að öllu óbreyttu á íslenska sendinefndin að koma aftur til Íslands á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×