Morgublaðið brýtur eigin reglu 30. september 2005 00:01
Morgunblaðið telur það brot á lögum að birta tölvupóstssamskipti einstaklinga. Við því séu viðurlög og þung refsing. Morgunblaðið hefur að minnsta kosti tvívegis birt tölvupóst einstaklinga án þeirra samþykkis og hefur því að eigin mati gerst brotlegt gegn lögum því einkatölvupóstur Össurar Skarphéðinssonar og Gunnlaugs Sigmundssonar hafa birst án þeirra samþykkis á síðum Morgunblaðsins. Í ritstjórnargrein Morgunblaðsins í gær segir: "Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og lögfræðingur Blaðamannafélags Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að birting á tölvupóstum án heimildar væri brot gegn almennum hegningarlögum og mannréttindakafla stjórnarskrár." Niðurlag ritstjórnargreinarinnar er: "Stuldur á tölvupóstum er lögbrot og viðurlög eru þung refsing. Birting Fréttablaðsins á tölvupóstssamskiptum nokkurra einstaklinga er lögbrot og viðurlög eru þung refsing. Að auki heldur Atli Gíslason því fram, að sú birting sé einnig brot á mannréttindakafla stjórnarskrár." Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins sagði á starfsmannafundi á Morgunblaðinu í vikunni um ástæðuna fyrir því að hann hefði ekki birt fréttir um Baugsmálið byggðar á gögnum Jóns Geralds Sullenberger: "Ég vildi ekki birta neitt af þessu því þetta voru innanhússskjöl frá fyrirtæki úti í bæ og mér fannst þetta mál ekki eiga heima á síðum dagblaðanna heldur hjá lögfræðingi." Morgunblaðið birti hins vegar bréfaskipti Norðurljósa og Landsbankans vegna fjárhagsstöðu Norðurljósa og lánamála félagsins, fáeinum mánuðum síðar. Sigurður G. Guðjónsson, þáverandi forstjóri Norðurljósa segist hafa gefið leyfi fyrir birtingu bréfanna, en að sögn Brynjólfs Helgasonar, sem annar tveggja ritaði undir bréf Landsbankans, gaf Landsbankinn ekki leyfi fyrir birtingunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira