Arfavitlaus hagstjórn 30. september 2005 00:01 "
Hagstjórnin er eins arfavitlaus og hægt er að hugsa sér," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims á Akureyri. Guðmundur segir vandann vera heimatilbúinn því ríkið eigi bæði Íbúðalánasjóð sem dæli út peningum og Seðlabankann á hinum endanum. Hann telur að þessar aðferðir eigi eftir að leggja útflutningsgreinarnar í rúst. "Afleiðingarnar koma bara ekki í ljós alveg strax, en þær verða mjög alvarlegar til lengri tíma litið," segir Guðmundur. Í sama streng tekur Stefán Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Íslandsferða. Hann segist sjá fram á versnandi hag ferðaþjónustu í kjölfar hækkunar á stýrivöxtum. "Því sterkari sem krónan er, þeim mun verri verða aðstæður okkar. Við erum trúlega í um fimmtán prósentum verri aðstöðu núna en fyrir ári síðan vegna gengisþróunarinnar," segir Stefán. Hann útskýrir að verið sé að keppa við þjónustu í öðrum löndum þar sem gengi er stöðugt. Þannig sé um að ræða ytri aðstæður í rekstrinum sem valdi verðhækkunum og minni eftirspurn. Viðar Viðarsson, framkvæmdastjóri EJS, segist ekki viss um að gengið hafi allt að segja fyrir þá sem flytja vörur inn. "Þó að gengið styrkist eða veikist þýðir það bara batnandi eða versnandi aðstæður fyrir alla sem eiga í innflutningi," segir Viðar. Hann segir áhuga sinn fremur beinast að gengisþróun þeirra gjaldmiðla sem hann og samkeppnisaðilarnir eru að versla í. Viðar segir viðskiptavini fyrirtækisins njóta hagstæðrar gengisþróunar.
Fréttir Innlent Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira