Fatlaðir lyfta á Lækjartorgi 29. september 2005 00:01
Þandir vöðvar, þrútnar æðar, öskur og grettur verða allsráðandi á Lækjartorgi í dag þegar tíu aflraunamenn úr röðum fatlaðra kljást í keppninni um sterkasta fatlaða mann heims ársins 2005. Íþróttafélag fatlaðra stendur að mótinu, sem haldið í þriðja sinn. Kristberg Jónsson hefur titil að verja í flokki standandi en Finninn Tahvo Jauhojärvi freistar þess að verja titil sinn í flokki sitjandi, það er, þeirra sem nota hjólastóla. "Ekkert annað en sigur kemur til greina," segir Kristberg kokhraustur en viðurkennir að pressan sé á honum. "Keppinautar mínir ætla að hefna síðan síðast og gera allt til að sigra mig." Kristberg hefur æft vel að undanförnu, í tvo tíma á dag, og er hvergi banginn. Nokkrir keppendur frá Íran hugðust taka þátt í mótinu en ekkert varð úr þar sem þeir fengu ekki vegabréfsáritun í tæka tíð. Eru þeir þegar staðráðnir í að keppa að ári og munu þá eflaust setja skemmtilegan svip á mótið. Arnar Már Jónsson, aflraunamaður og þjálfari hjá Íþróttafélagi fatlaðra, hefur veg og vanda af mótinu, ásamt Magnúsi Ver Magnússyni margföldum aflraunameistara. Hann hvetur fólk til að fylgjast með enda horfur á spennandi keppni. "Fólk hefur líka gott af að sjá hvað þessir menn geta gert þrátt fyrir fötlunina," segir hann en keppt er í sömu greinum og í Sterkasti maður heims, þær hafa aðeins verið aðlagaðar fötluðum. Keppnin hefst á Lækjartorgi klukkan 14 í dag og er framhaldið við Fjörukrána í Hafnarfirði klukkan 13 á morgun. Lokagreinarnar fara svo fram í Íþróttahúsi fatlaðra í Hátúni, síðdegis á morgun. Kristberg Jónsson er spenntur fyrir keppninni en hvetur fyrirtæki til að styrkja fatlaða aflraunamenn svo þeir geti æft enn meira og betur. "Þetta er svo dýrt fyrir okkur," segir hann en hver króna fer í sportið. "Ég hef fengið litla styrki hér og þar en þeir mættu vera fleiri. Ég bið ekki um mikið," segir Kristberg, sterkasti fatlaði maður heims.
Fréttir Innlent Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira