Magnús á leið í Víking? 28. september 2005 00:01
Magnús Gylfason verður að öllum líkindum næsti þjálfari Víkinga, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins og leysir Sigurð Jónsson af hólmi. Magnús var sem kunngt er leystur undan störfum hjá KR í sumar. Víkingar settu strax í samband við Magnús þegar samningar náðust ekki við Sigurð og er vilji beggja aðila að ganga til samninga."Magnús kemur alveg eins til greina og aðrir. Hann er í golfi á Spáni. Ég neita því ekki að við höfum rætt við Magnús og reyndar fleiri þjálfara. Það verður gengið frá þjálfaramálunum síðar í vikunni, hver sem það verður," sagði Ágúst Friðrik Hafberg, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, við Fréttablaðið. Ekki náðist í Magnús í gær. Sigurður, sem er í fríi í San Marino, sagði við Fréttablaðið að því miður hefði ekki náðst samkomulag við Víking um áframhaldandi samstarf. "Þetta er eins og hjónaband, stundum eru aðilar bara ekki sammala og þá gengur dæmið ekki upp. Annars er ég mjög sáttur við aðskilnað minn hjá Víkingi. Ég skilaði liðinu aftur upp í Landsbankadeildina."Sigurður sagðist vera með tvö tilboð í höndunum um þjálfun, annað þeirra er frá Svíþjóð sem aðstoðarþjálfari í góðu liði og hitt er hér heima. Sigurður vildi ekkert tjá sig frekar um það. Sigurður hefur aðstoðað Eyjólf Sverrisson hjá U-21 árs landsliði Íslands í sumar. Þrálátur orðrómur er á kreiki að Eyjólfur taki við íslenska A-landsliðinu í haust og Sigurður hefur verið orðaður sem næsti þjálfari U-21 árs landsliðsins."Ég neita því ekki að mér finnst það spennandi kostur. Það hentar mér vel að þjálfa efnilega knattspyrnumenn," sagði Sigurður sem ætlar að leggjast undir feld þegar hann kemur heim úr sumarfríi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ Fótbolti Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Fótbolti Norsk handboltastjarna með krabbamein Handbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar Íslenski boltinn Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar City vann riðilinn og sleppur líklega við Real Madrid Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Markadrottning afgreiddi mótherja Íslands í síðasta leik fyrir EM „Við vorum að rústa Íslandsmetinu“ Mbappé aftur með PSG í réttarsalinn og nú vegna eineltis Norsk handboltastjarna með krabbamein Sigur og tap í generalprufum mótherja Íslands fyrir EM í Sviss Vrkić í Hauka Snorri Dagur aðeins fimm sekúndubrotum frá verðlaunasæti á EM Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Snorri Dagur í úrslit á EM Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Bulls veðja á fyrrum lærisvein Baldurs Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Spila um Forsetabikarinn á HM Fyrirliði Brentford að ganga til liðs við Arsenal Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Sjá meira