Skipsbrotsmanni bjargað 27. september 2005 00:01 "
Það gekk bara mjög vel miðað við veður og aðstæður að koma honum um borð," segir Magnús Örn Einarsson, stýrimaður og sigmaður TF-LIF. "Hann treysti sér til þess að setja björgunarlykkjuna á sig sjálfur og við vorum ekki nema í fjórar mínútur yfir honum, þá var hann kominn til okkar." Skútan Vamos lenti í vandræðum þegar mastur hennar brotnaði í afleitu veðri um 90 sjómílur norðvestur af Vestfjörðum, um það bil mitt á milli Grænlands og Íslands. Skömmu eftir miðnætti fékk skútan á sig brotsjó, mastrið brotnaði og hún lagðist á hliðina með þeim afleiðingum að annar skipverja, skoskur að uppruna, féll fyrir borð. Hinn maðurinn, sem er bandarískur, gat lítið annað gert en að bíða eftir hjálp. Fyrsta neyðarkallið barst klukkan 2.17 aðfararnótt þriðjudags, en ekkert samband náðist við skútuna. Landhelgisgæslan kannaði skipaferðir á svæðinu og hafði samband við björgunarstöðvar í nágrannalöndunum til að fá upplýsingar um uppruna neyðarbaujunnar og skipaferðir. Björgunarstjórnstöðin í Norfolk í Bandaríkjunum gaf að lokum upplýsingar um skútuna, sem og að tveir menn væru um borð. Þá var haft samband við norskan línuveiðara sem var á veiðum á svæðinu, en hann gat ekkert aðhafst vegna aftakaveðurs. Vindhraði á svæðinu var um það bil 30 metrar á sekúndu, lélegt skyggni, haglél og 10 til 15 metra ölduhæð, að sögn norska skipstjórans. Fokker-vél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, mætti á svæðið ásamt þyrlunni þegar birti. Þær fundu skútuna skömmu eftir klukkan átta í gærmorgun, og leið manninum bærilega miðað við aðstæður, segir Magnús. Þegar búið var að hífa manninn um borð var leitað að félaga hans, en sú leit bar engan árangur.
Fréttir Innlent Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira