Áhugi á tungumálum minnkar eilítið 26. september 2005 00:01
Áhugi grunn- og framhaldsskólanema á erlendum tungumálum virðist hafa minnkað ef marka má nýjar tölur sem Hagstofa Íslands birtir á degi tungumála í Evrópu, sem er í dag. Þar kemur fram að skólaárið 2003-2004 lögðu 73,9 prósent nemenda á framhaldsskóla stund á nám í einhverju erlendu tungumáli en ári síðar hafði hlutfallið lækkað í 73,0 prósent. Frá árinu 1999 hefur nemendum sem læra erlend tungumál fækkað um 2,8 prósentustig. Flestir framhaldsskólanemar leggja stund á ensku, næstflestir dönsku og þýska er þriðja algengasta erlenda tungumálið í framhaldsskólum. Þýsku- og frönskunemum í framhaldsskólum hefur fækkað hlutfallslega frá árinu 1999 en spænska hefur á síðustu árum sótt í sig veðrið og numu tæp ellefu prósent framhaldsskólanema spænsku á síðasta ári, litlu færri en lærðu frönsku. Eftir breytingar á aðalnámskrá grunnskóla árið 1999 er enska fyrsta erlenda tungumálið í grunnskólum og jafnframt það mál sem flestir grunnskólanemendur læra. Flestir grunnskólanemar hefja enskunám í 5. bekk og dönskunám í 7. bekk. Enskunemum hefur fjölgað ár frá ári í grunnskólum og sama má segja um dönskunema. Nemendum í sænsku fer fækkandi en norskunemum fjölgandi séu bornar saman tölur síðustu ára. Í nokkrum skólum hefst kennsla í erlendum tungumálum fyrr en kveðið er á í aðalnámsskrá. Skólaárið 2004-2005 lærðu rúmlega fimm hundruð nemendur í 1.-3. bekk ensku í grunnskólum landsins og 435 nemendur í 4. bekk, tvöfalt fleiri en árið áður. Þá kemur einnig fram í gögnum Hagstofunnar að grunnskólanemendum sem velja þriðja málið, þ.e. fyrir utan ensku og dönsku, hafi fækkað á undanförnum árum, en þar velja flestir þýsku.
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Innlent Fleiri fréttir Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Sjá meira