Enn ekki verið yfirheyrður 24. september 2005 00:01
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Austurlands hefur enn ekki verið yfirheyrður vegna ákæru á hendur honum og sex öðrum vegna gruns um misnotkun á fjármunum sjóðsins. Þrú ár eru liðin frá því að málið var kært. Hrafnkell A. Jónsson, fyrrum formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Austurlands og einn sjömenninganna sem legið hefur undir ámæli vegna fjárfestinga í nafni sjóðsins, sagðist í fréttum Stöðvar 2 í gær vera ósáttur við að meintar sakargiftir hans og annarra stjórnarmanna í Lífeyrissjóði Austurlands væru fyrndar. Hann kvaðst hafa heyrt af því við skýrslutöku hjá embætti efnhagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra fyrir mánuði. Árið 2003 lögðu fjórir sjóðsfélagar fram ákæru á hendur fyrrum stjórnendum sjóðsins vegna fjárfestinga á árunum 1991-2000. Síðan hefur málið verið rannsakað af efnhagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra. Fyrir liggur að sjóðurinn fjárfesti meira en leyfilegt er í óskráðum hlutabréfum, meðal annars í knattspyrnufélaginu Stoke City á Englandi. Hrafnkell er þó ekki einn um að hafa fengið þessi tíðindi af fyrningu. Öðrum stjórnarmönnum sem fréttastofa ræddi við í dag hefur einnig verið tjáð að meintar sakir þeirra séu fyrndar. Reynist það rétt eru einungis tveir menn sem hafa réttarstöðu grunaðra í málinu: fyrrum framkvæmdastjóri sjóðsins og endurskoðandi. Annar þeirra, Gísli Marteinsson, fyrrum framkvæmdastjóri, vildi ekki veita fréttastofu viðtal í dag en aðspurður kvaðst hann ekkert hafa heyrt af gangi rannsóknarinnar né heldur hafi hann verið kallaður til skýrslutöku í málinu, nú nærri þremur árum eftir að kæra var lögð fram. Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að fyrir um hálfu ári hafi kærendur sett sig í samband við yfirmann rannsóknarinnar og spurt um gang mála. Var þeim tjáð þá að sakir í máli Lífeyrissjóðs Austurlands myndu ekki fyrnast sökum alvarleika meintra brota. Var þeim jafnframt tjáð þá að nýr aðili væri tekinn við rannsókn málsins, en samkvæmt heimildum fréttastofu mun það vera í annað sinn sem skipt er um yfirmann rannsóknarinnar á þremur árum. Enn bólar þó ekkert á ákæru í málinu. Gísli Marteinsson hefur áður verið ákærður vegna málefna sjóðsins. Fyrir ári var hann sýknaður í Hæstarétti af ákærum um óheimilar lánveitingar sjóðsins til erlends fyrirtækis.
Fréttir Innlent Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Sjá meira