Sport

Vissu um mikilvægi marks Rikka

Leikmenn Fram í Landsbankadeild karla voru meðvitaðir um það inni á vellinum að mark Ríkharðar Daðasonar lyfti liðinu tímabundið í 8. sætið í deildinni en með því minnkaði hann muninn í 4-1 gegn FH á Laugardalsvelli í gær. Hefðu það orðið úrslit leiksins hefði Fram náð að halda sér í deildinni á kostnað ÍBV á fleiri mörkum skoruðum en markatala Fram á þeirri stundu var að öðru leiti jöfn ÍBV sem þá var 1-0 undir gegn Fylki í Árbænum. Fram með markatöluna 19-31 en ÍBV með 18-30. En markið sem Tryggvi Guðmundsson skoraði og kom FH í 5-1 í viðbótartíma reyndist þó örlagavaldur Safamýrarliðsins og sendi það niður í 1. deild þrátt fyrir að vera með 17 stig eins og ÍBV. Ingvar Ólason leikmaður Fram segir leikmenn hafa verið meðvitaða um gang mála í Árbænum og hafi einbeitt sér að því að fá ekki á sig annað mark. "Það var frekar erfitt að vita ekki af því að við máttum ekki fá á okkur annað mark. Það var kallað til okkar úr öllum áttum, frá hliðarlínunni og ofan úr stúku þannig að við vissum að við máttum ekki fá á okkur annað mark." sagði Ingvar Ólason leikmaður Fram við Vísir.is nú síðdegis. Spennan á lokamínútunum í lokaumferðinni í gær var magnþrungin og það varð ekki ljóst fyrr en leiknum í Árbænum lauk að Fram væri fallið en þeim leik lauk síðast af leikjunum fimm. Leikmenn Fram stilltu sér margir fyrir framan sjónvarpsskjá á Laugardalsvellinum og fylgdust með gangi mála hjá Fylki og ÍBV. Hefði FH unnið 3-0 eins og staðan var um tíma þá hefði Fram haldið sæti sínu í deildinni þrátt fyrir að vera jafnt ÍBV að stigum og með hnífjafna markatölu. vegna betri úrslita í innbyrðisviðureignum liðanna. En Fram hefur nú barist við falldrauginn í lokaumferð efstu deildar sjö ár í röð og ljóst að liðið hafði ekki nema sex líf eftir allt saman. Nú eru nýjir tímar framundan í Safamýrinni og ljóst að liðið mun einbeita sér að því að koma sér upp aftur hið snarasta. Helgi Sigurðsson er sagður vera á leið til Fram frá Danmörku en aðspurður sagðist Ingvar ekkert vera farinn að huga að sinni framtíð hjá félaginu. "Samningurinn minn rennur út núna í haust en ég ætla ekkert að spá í þau mál fyrr en það gerist." sagði Ingvar en Fram á einn leik eftir af tímabilinu, gegn Val í úrslitaleik VISA bikarsins um næstu helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×