Erlent

Dagsetning ákveðin

Verjendur Saddams Husseins hafa áhyggjur af tímaskorti við að undirbúa sig fyrir réttarhöldin yfir Hussein en yfirvöld hafa ákveðið að þau muni hefjast 19. október. Saddam á dauðarefsingu yfir höfði sér. Khalil al-Dulaimi, verjandi Saddams, vildi ekki tjá sig um tímasetningu réttarhaldanna, sem ákveðin var af Laith Kubba, talsmanni ríkisstjórnar Íraks. Lögfræðilegur ráðgjafi fjölskyldu Saddams sagði hins vegar að tímasetningin drægi úr möguleikum verjendanna á að undirbúa sig fyrir réttarhöldin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×