Innlent

Hundruð tepptust í Eyjum

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum heppnaðist mjög vel og talið er að hátt í tíu þúsund manns hafi verið í Herjólfsdal. Veður setti þó strik í reikninginn og hamlaði flugi frá Vestmannaeyjum í gær. Lögreglan segir hátíðina hafa gengið mjög vel og tímunum saman hafi lögreglan engin símtöl fengið. 99,9% gestanna voru mjög gott fólk, sagði einn lögreglumannanna þar. Engar nauðganir voru kærðar en hátt í þrjátíu smávægileg fíkniefnamál komu upp um helgina. Fyrstu tvær næturnar voru rólegar en nokkur erill var aðfaranótt mánudags. Tvær líkamsárásir voru kærðar í gærmorgun. Flug til Reykjavíkur tafðist nokkuð seinnipartinn í gær vegna veðurs og nokkur hundruð manns komust ekki í bæinn. Þá var hætt að fljúga á Bakkaflugvöll upp úr hádegi. Um 150 manns dvöldust á Vestmannaeyjaflugvelli en þar gekk allt vandræðalaust fyrir sig. Einnig var nokkuð af fólki sem dvaldist í íþróttahúsinu. Talið er að um sex þúsund þjóðhátíðargestir hafi komið ofan af landi til Eyja frá fimmtudeginum, og þar af hátt í 1.800 með flugi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×