Sport

Jakob Jóhann í undanúrslit

Jakob Jóhann Sveinsson komst í dag í undanúrslit í 200 metra bringusundi á heimsmeistarmótinu í sundi í Montreal, þegar hann varð 13. af 55 keppendum í undanrásum. Hann synti á 2 mín.15.28 sek. og var aðeins 8/100 úr sek. frá Íslandsmeti sínu. Undanúrslitin verða í beinni útsendingu á þremur stöðvum á Digital Ísland, RAI (ítölsk stöð), ART (þýsk stöð) og SVT1 (sænsk stöð).



Fleiri fréttir

Sjá meira


×