Sport

Íslendingar sigruðu Tyrki

Íslendingar sigruðu Tyrki með þremur mörkum gegn einu á opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu, leikmanna 18 ára og yngri, í gær. Einum leikmanni tyrkneska liðsins var vísað af velli á 12. mínútu. Sjö mínútum síðar skoraði Víkingurinn Birkir Bjarnason og Eggert Gunnþór Jónsson, sem er á mála hjá skoska liðinu Hearts, bætti við öðru marki á 68. mínútu. Þórður Ingason, markvörður úr Fjölni, varði skömmu síðar vítaspyrnu og Valsmaðurinn Elvar Freyr Arnþórsson skoraði þriðja markið sextán mínútum fyrir leikslok. Tyrkir minnkuðu muninn skömmu áður en flautað var til leiksloka.. Íslendingar mæta Svíum á morgun en þeir töpuðu 0-1 fyrir Norðmönnum í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×