Innlent

Sigmundur Ernir nýr fréttastjóri

Páll Magnússon hefur sagt lausum störfum sínum sem frétta- og sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, tekur við fréttastjórastöðunni. 365 mun hefja útsendingar nýrrar sjónvarpsstöðvar í haust. Dagskrá stöðvarinnar verður borin uppi af fréttum og umfjöllun um dægurmál. Samhliða stofnun nýrrar fréttastöðvar verður stórefld fréttaþjónusta 365 í sjónvarpi og útvarpi, á Netinu og með ýmisskonar nýmiðlun. Róbert Marshall hefur verið ráðinn framkvæmdalegur forstöðumaður nýs fréttasviðs og mun undirbúa og síðar stjórna rekstri nýrrar fréttastöðvar. Sigmundur Ernir mun taka að sér ritstjórn á hinni nýju fréttarás auk starfs síns sem fréttastjóri Stöðvar 2.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×