Innlent

Rjúpnaveiðar hefjast aftur í haust

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að hefja rjúpnaveiðar á ný í haust. Þetta er byggt á niðurstöðu talningar Náttúrufræðistofnunar í vor þar sem fram kemur að rjúpnastofninn hafi meira en þrefaldast á tveimur árum. Settar verða reglur um veiðarnar sem eiga að trygga að nýting rjúpnastofnsins verði í samræmi við afrakstursgetu hans. Ráðherra mun hafa samráð við bændasamtökin, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skotveiðifélag Íslands og Fuglaverndarfélagið um framkvæmdina. Reglur verða svo birtar í byrjun september.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×