Innlent

Eldur í sumarbústað

Sumarbústaður í Miðfellslandi, við austanvert Þingvallavatn stórskemmdist í eldi í gærkvöld. Bústaðurinn var mannlaus þegar slökkvilið kom á vetvang, en eigendur höfðu verið í honum fyrr um daginn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en bústaðurinn mun vera nánast ónýtur eftir. Eldsupptök eru ókunn og er málið í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×