Þriðji sigur Valsmanna í röð 12. júlí 2005 00:01
Matthías Guðmundsson tryggði Val 1-0 sigur í Grindavík með marki 14 mínútum fyrir leikslok en þetta var þriðji sigur liðsins í röð í Landsbankadeildinni. Valsmenn unnu góðan útisigur en þó alls ekki öruggan í Grindavík í gær. Heimamenn voru síst lakara liðið í leiknum og voru óheppnir að fá ekkert út út honum. Þeir sýndu oft á tíðum mjög gott spil sín á milli en tókst þó ekki að skora. Sóknarmenn liðsins voru mjög ógnandi en fundu ekki leiðina fram hjá Kjartani Sturlusyni sem var öruggur í marki heimamanna. Mounir Ahandour var hættulegur og komst tvívegis nálægt því að skora með skalla en í bæði skiptin varði Kjartan frá honum. Besta færi liðsins fékk Eysteinn Húni Hauksson sem skaut yfir úr dauðafæri strax á upphafsmínútu seinni hálfleiks en hann kom inn sem varamaður í leikhléinu. Oft klikkaði þó hin svokallaða síðasta sending hjá liðinu. Valsmenn hafa oft spilað betur en í gær en þeir gerðu það sem þurfti. Þeir hafa sýnt í sumar að þeir eru duglegir við að refsa fyrir öll mistök mótherjana, hafa mjög vel spilandi lið sem sækir af krafti og er alltaf líklegt til að skora. Barátta liðsins skilaði sigri og þeir halda áfram að narta í hæla FH-liðsins. Eitt mark leit dagsins ljós í leiknum, Matthías Guðmundsson átti ekki í vandræðum með að skora á 76. mínútu þegar Óli Stefán Flóventsson gerði sig sekan um mistök. Eftir þetta mark spiluðu Valsmenn leikinn af miklu öryggi. „Mér fannst við töluvert betri allan leikinn en vandamálið er að við náum ekki að skora. Það mátti ekki sjá á þessum leik að það væri tólf stiga munur á liðunum," sagði Magnús Þorsteinsson leikmaður Grindvíkinga. Sigurbjörn Hreiðarsson fyrirliði Vals var hressari í leikslok. „Það er mjög erfitt að spila á móti Grindavík á útivelli, en við vildum þetta. Vonandi hefur ströng dagskrá FH liðsins áhrif á þá."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Vilja banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið Handbolti Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Körfubolti Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Enski boltinn Dagskráin í dag: Pressa á Arsenal og Stúkan um kvöldið Sport Fleiri fréttir Rændu sínu liði titilfögnuði og eiga yfir höfði sér lífstíðarbann „Eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið síðasta áratuginn“ Vilja banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið Dagskráin í dag: Pressa á Arsenal og Stúkan um kvöldið Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Orri áfram heitur á Spáni Skoruðu eftir 15 sekúndur og Þórir fékk engu breytt Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Sjá meira