Engu að tapa í síðari leiknum 12. júlí 2005 00:01
FH var í eldlínunni í Meistaradeild Evrópu í gær en mátti þola vont tap gegn Neftchi Baku í fyrri leiknum , 0-2. FH-liðið þarf því að vinna heimaleikinn eftir viku með þriggja marka mun en leikurinn í dag var sá fyrsti sem liðið tapar í sumar. FH-ingar eru í nokkuð erfiðri stöðu í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 tap gegn Neftchi Baku frá Aserbaídsjan í gær. Heimamenn skoruðu annað markið á síðustu mínútu leiksins og gæti það reynst afar dýrmætt þegar einvígi liðanna lýkur, en síðari leikurinn fer fram í Kaplakrika að viku liðinni. „Seinna markið hjá þeim var algjör heppni og klaufaskapur hjá okkur. Það kom fyrirgjöf og skalli og mark. Algjör óþarfi," sagði óánægður Pétur Stephensen, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH, þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær, en hann fylgdist með sínum mönnum ytra í gær. Leikstíll FH í Aserbaídsjan í gær var töluvert frábrugðin þeim sem liðið hefur verið að notast við í sumar og kaus Ólafur Jóhannsson, þjálfari liðsins, að hefja leikinn með fimma manna varnarlínu þar sem Freyr Bjarnason fór í miðja vörnina en Davíð Þór Viðarsson lék í stöðu vinstri bakvarðar. „Það var lagt upp með að fá ekki á sig mark en því miður gekk það ekki upp," segir Pétur, en heimamenn náðu forystunni strax á 20. mínútu. Segja má að leikmenn Neftchi hafi verið með leikinn í höndunum allan tímann og spiluðu mjög ákveðið gegn FH-ingum sem voru, að sögn Péturs, ekki samkvæmir sjálfum sér. Það sést kannski best á því að Íslandsmeistarar FH náðu varla að skapa sér opið marktækifæri í öllum leiknum. „Við létum bara ekki finna nægilega mikið fyrir okkur í fyrri hálfleik, en í seinni hálfleik áttum við í fullu tré við þá. Og nú verðum við bara að vinna þá heima, ekkert öðruvísi. Þá spilum við meiri sóknarleik enda höfum við engu að tapa," segir Pétur. fréttablaðið/Stefán
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Sport Fleiri fréttir Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Sjá meira