Sport

Hver fær ÓL 2012?

Mikil spenna ríkir nú vegna sumarólympíuleikanna 2012 en tilkynnt verður aðfararnótt miðvikudags hvaða borg hreppir leikana. Alþjóðaólympíunefndin er komin saman í Singapore í Malasíu þar sem kjörið fer fram. París og London þykja líklegustu borgirnar til að verða fyrir valinu en auk þeirra berjast Madrid, Moskva og New York um hituna. Hiti er farinn að hlaupa í pólítikina fyrir kjörið. Umsóknarhópurinn á vegum Lundúnaborgar lýsti því yfir í gær að Stade de France leikvangurinn í París sé ekki heppilegur fyrir íþróttamót af þessu tagi. Franski hópurinn tók ummælunum síður en svo vel og íhugaði í morgun að leggja fram formlega kvörtun til alþjóðaólympíunefndinnar. Jacques Rogge forseti alþjóðanefndarinnar fékk franska hópinn þó ofan af því nú síðdegis. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir þá borg sem hreppir Ólympíuleikana og er gjörsamlega öllu til tjaldað. Borgirnar hafa tekið upp á því að tefla fram heimsþekktum nöfnum til að tala sínu máli á lokakynningunni fyrir kjörið aðra nótt og streyma stjörnurnar til Singapore. Fyrir London eru sjálfir Tony Blair og David Beckham mættir til að tala fallega um borgina. Fyrir París er enginn annar en Frakklandsforsetinn Jacques Chirac væntanlegur í kvöld og fyrir New York er borgarstjórinn Michael Bloomberg mættur til Malasíu og ameríska hnefaleikagoðsögnin Muhammad Ali mun leggja sitt af mörkum. 114 manna nefnd alþjóðaólympíusmabandsins mun hlýða á þessi fyrirmenni halda sínar ræður og kjósa svo borgina sem hæfust þykir til að hýsa þessa stærstu íþróttahátíð í heimi. Bein útsending hefst frá kjörinu á Eurosport kl. 01.30 að íslenskum tíma aðfararnótt miðvikudags.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×