Sport

Hannes með tvö og valinn bestur

Hannes Þ. Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir lið sitt, Viking Stavanger, þegar liðið vann Trömsö 3-2 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Hann var jafnframt valinn besti leikmaður vallarins af norska netmiðlinum Nettavisen. Hannes er búinn að skora þrjú mörk í deildinni. Viking er í fimmta sæti deildarinnar með 21 stig og eru sex stigum á eftir efsta liðinu, Start. Árni Gautur Arason stóð í marki Valerenga þegar liðið bar sigurorð af norsku meisturunum, Rosenborg, á útivelli, 3-2. Valerenga er í þriðja sæti með 21 stig. Rosenborg er í áttunda sæti með 15 stig og nær útilokað að þeir verji titilinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×